Færsluflokkur: Bloggar

Þvílíkur viðbjóður

Á meðan bankarnir gefa almenning engan grið, þá er afskrifaðir 50 milljarðar af þessum gaur. Hann hefur sýnt að hann er óhæfur að reka fyrirtæki, afhverju ekki að láta annað fólk reyna og láta hann borga allt sem hann getur, þurfum að hafa littlar áhyggjur af honum hann getur flutt til Tortula og lifað þar sældar lífi, en í guða bænum ekki láta hann koma nálægt fyrirtækja rekstri.

Hann átti þyrlu sem var með gullhúðað hnappa og hnúða ... segir allt um þennann mann.


mbl.is Gamli Landsbankinn afskrifar skuldir Magnúsar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi?

Þvílíkur viðbjóður, skiptir ekki hvort maður sé sammála Sigmundi eða ekki þetta er þvílíkt viðbjóðslegur valdaníðsla að hálfa er ekki nóg. Ég held að hún hafi sýnt það að hún geti ekki talist vera hæf til að valda þessu embætti. Alþingismenn hafa lítið að segja og núna á gjörsamlega að keyra yfir þá, ekki mun ég kjósa samfylkinguna nokkurntímann aftur, nú er komið nóg.
mbl.is Einleikur forseta á bjöllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hefur enginn ímyndunarafl að skrifa þennan farsa ...

Ég get svarið það ... og Jón Baldvin líka. Ótrúlegt.

Uffe Elleman sagði að það sem stjórnmálamenn hefðu, sem væru í forystu, væri trúin að þeir væru einu mennirnir í "starfið". Ég held að DO og JBH sanni það, verður samt áhugavert að sjá þá rífast sem almennir þingmenn ef af verður ...


mbl.is Davíð í framboð á Suðurlandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta heitir að "plögga sig inn"

Allir eru þeir eins, bara tilviljun að hann og Birkir séu að berjast um sæti og þá kemur hann sér í fjölmiðla á allan mögulegan hátt, kosningabaráttan er byrjuð ....
mbl.is Sakar forseta Alþingi um valdníðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt?

Veit ekki hvort það sé sorglegt að lesa þessa endalausu þus hjá honum HHG um Davíð, e-r sorgarviðbrögð hef ég samt að lesa eftir HHG í dag og þessa frétt. HHG skrifaði það mikið og kom í viðtölum (sjá youtube) um hversu gott líf DO byggði handa okkur til að hægt sé nokkurn tímann að taka mark á honum. Hann á það kannski ekki skilið en ég get ekki annað en vorkennt manni eins og HHG. Kannski ætti ekki að vorkenna honum það sem eina sem hann er að tapa er lífsýnin en við hin miklum peningum, hvort er verra?
mbl.is Hannes Hólmsteinn: Óvinir Davíðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiptir ekki máli hvaðan gott kemur, eða '

Ég mun styðja hann og beina viðskiptum mínum til hans, erfitt að hugsa um það þegar verslað er í Bónus að það leiði bara til meira sukk og vesen.


mbl.is Hyggst stofna lágvöruverðsverslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1991 - 2008, XD

Gott að hægri menn séu búnir að vera við völd, fátækast og skattpíndasta þjóð í Evrópu.

Vinstri stjórn mynd ekki reka ríkið svona vel, vinstri stjórn myndi bara setja reglur og lög á fyrirtæki. Það væri slæmt að hefta einkaframtakið með einhverjum vitleysum eins og reglum og lögum sem asnar í Evrópu eru að fylgja eftir.

Ef við viljum halda áframhaldandi góðæri verðum að kjósa X-D, ef ekki þá e-ð annað.

Ég lýsi hér með yfir, á bloggi sem enginn les nema ég, að ég mun ALDREI haka X við D aftur, því ég er svo vitlaus að ég vil hafa reglur og lög sem eru eftirfylgni er við, það mætti jafnvel kalla mig Bolsa að halda slíkri vitleysu fram.

Skil samt miðað við ástandið að það verði að hækka skatta en er ekki tími kominn á að lækka stýrivexti á sama tíma, til að stýrivextir hald við framboð peninga?


mbl.is Tekjuskattur og útsvar hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirgefðu Árni, við erum svo miklir vitleysingar ...

Fyirgefðu Árni minn, við erum vitleysingar, það er greinilegt. Að við viljum að þú takir ábyrgð, þvílík eindæmis vitleysa. Þú ert bara dýralæknir og hvernig geta dýralæknar boðið einhverja ábyrgð á fjármálum landsins?

Fyrir hönd þjóðarinnar þá bið ég þig afsökunar, ósanngjarnt að bland þér inn í fjármál heillar þjóðar.

Kveðja,
Skattborgari


mbl.is Undrandi á forseta ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri það ekki klassískt ......

Það væri eftir allri spillingunni að Agnes væri fyrst skotmark FME. Það er búið að fella dóm yfir FME, það var þann 14.ágúst þegar þeir sögðu bankana standa vel og þann 6.okt þegar allt féll eins og spilaborg. Gagnslaus stofnun sem á að passa upp á ? ... Þá sem settu okkur á hausinn?

Ekki leita að sökudólgum sögðu sökudólgarnir, dólgar eru þeir.

Áfram Agnes.


mbl.is FME hefur umfjöllun Morgunblaðsins til skoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Birgir Gunnarsson

Höfundur

Birgir Gunnarsson
Birgir Gunnarsson
Áhugamaður um stjórn og óstjórn.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...wl-1-136-02

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband